Önnur nöfn
Enska: diarrhea
Niðurgangur einkennist af tíðum vatnskenndum hægðum og getur orsakast af mörgum ástæðum, eins og sýkingu í meltingarvegi (vegna baktería, vírusa eða sníkjudýra), matareitrun, kaffidrykkja, streita og kvíði, fæðuofnæmi og fæðuóþol og aukaverkanir af lyfjum. Niðurgangur er leið líkamans að losa sig við eiturefni og því er ráðlagt að leyfa líkamanum að hreinsa sig út a.m.k. í stutta stund áður en reynt er að bæla það niður.
Hér til hliðar má sjá myndir af niðurgangi samkvæmt Bristol Stool Scale þar sem gerðir 5-7 teljast til niðurgangs og gerðir 3-4 eru eðlilegar hægðir.
Niðurgangur getur valdið vökvaskorti og er því mikilvægt að drekka vatn til að viðhalda vökvajafnvægi. Gott er setja tvær teskeiðar af eplaedik í glas af vatni og drekka með hverri máltíð. Einnig er hægt að bæta hunangi í vatn til að stilla maga og viðhalda blóðsykri. Ekki má gefa börnum undir eins árs hunang. Einnig er kókosvatn vel þekkt til þess að koma á vökvajafnvægi og er það gjarnan kallað vökvahleðsludrykkur náttúrunnar.
Ef um bakteríusýkingu eða matareitrun er að ræða er skynsamlegt að taka góðgerlablöndu (asídófílus) til að byggja upp góðar bakteríur í þarmaflóru sem sporna við slæmu bakteríunum.
Hrísgrjónavatn hefur verið lengi notað við niðurgangi. Sjóddu hálfan bolla af hrísgrjónum í einum lítra af vatni og drekktu soðið, lítið í einu.
Forðast skal mat sem veldur fæðuofnæmi eða fæðuóþoli. Í tilfelli óútskýrðs tíðs niðurgangs er hægt að halda dagbók yfir mat og niðurgang til að athuga hvort það getur verið samhengi þar á milli. Algengustu mataróþolsvaldarnir eru korn sem innihelda glúten, mjólkurvörur og soja.
Algengt er að börn (og fullorðnir) hafi ekki matarlyst þegar um niðurgang er að ræða. Best er að borða lítið í einu og oft af næringaríkum mat t.d. kjöt-, grænmetis- eða kjúklingasúpu.
Forðist sykur og einföld kolvetni, sérstaklega ef niðurgangurinn er vegna bakterísýkingar þar sem sykurinn fæðir bakteríurnar sem veldur ofvexti hjá þeim.
Brómber hafa lengið verið notuð fyrir niðurgangi. Te er búið til úr 80 grömmum af berjum og blöðum sem eru látin liggja í hálfpotti í 10 mínútur.
Eftirfarandi jurtir eru notaðar gegn niðurgangi, akurmáni, mjaðjurt, blágresi og læknastokkrós.
Arsenicum album er remedía sem er algengt notuð fyrir niðurgangi, sérstaklega niðurgangur sem er vegna matareitrunar, kvíða eða stress.
Calcarea carbonica er fyrir niðurgang eftir að borða mjólkurvörur og fyrir börn sem eru að taka tennur.
Magnesia phosphorica hjálpar að stilla maga og létta á magakrömpum.
Ef niðurgangur kemur eftir að borða feitan mat og manneskja finnst kuldi betri þá er Pulsatilla viðeigandi.
Læknir getur ávísað hægðarstillandi lyf til að stemma niðurgang. Einnig getur hann gefið sýklalyf fyrir niðurgangi ef orsökin er sökum baktería eða sníkjudýra, til að réttlæta þá meðferð þarf að staðfesta greiningu með ræktun.
Smart medicine for a healthier child 2 útg (bls.247). ISBN 1-58333-139-5
Náttúrulæknir heimilanna (bls.126). ISBN 9979-57-080-6
Náttúrulegar og hefðbundnar lækningar (bls.32). ISBN 9979-2-1560-7
Wikipedia. Leitarorð "Bristol Stool Scale". 14. júní 2010