Önnur nöfn
Enska: breastfeeding, nursing
Almennt gengur brjóstagjöf vel, en það getur ýmislegt farið úrskeiðis sem oft er einfalt að bæta úr.
Þegar brjóst er bólgið og stíflað er gott að leggja heitan þvottapoka á brjóstið fyrir brjóstagjöf til að losa um stíflur og bólgur.
Móðir ætti að leggja áherslu á fjölbreytt og næringaríkt mataræði þar sem mataræði móðurs er mikilvægt til að búa til næringaríka brjóstamjólk.
Taktu inn fjölvítamínsteinefni, auka D vítamín og lýsi eða hörfræolíu til að tryggja að þú sért að fá alla nauðsynlega næringu.
Mataræði móður getur verið að fara illa í ungabarnið í gegnum móðurmjólkina. Algengustu fæðutegundirnar sem fara illa í börn eru sérstaklega mjólkurvörur, einnig súkkulaði, kaffi, melónur, agúrka, paprika, sítrus ávextir/djús og mikið kryddaður matur. Ef móðir grunar að það geti verið samhengi á vandamáli barns og mataræði er sniðugt halda dagbók yfir mataræðið og vandamál barnsins og þannig mögulega sjá samhengið á neyslu móðurs og vandamáls.
Hægt er að kaupa tilbúin grasate sem eru ætluð til að auka mjólkurframleiðslu.
Pulsatilla – er notuð til að auka mjólkurframleiðslu, taka skal hana inn 30 mínútum fyrir brjóstagjöf
Silica eða Phytolacca – til að losa um stíflaðar mjólkurrásir.
Bryonia – fyrir stálma.
Belladonna – er notuð til að minnka brjóstabólgur.
Castor Equi – ef geirvörturnar eru að springa.
Hægt er að fá ráðleggingar frá brjóstagjafaráðgjöfum á fæðingadeildum sem eru sérmenntaðar í vandamálum sem snúa að brjóstagjöf. Brjóstagjafaráðgjafar eru einnig yfirleitt til staðar á fæðingadeildum til að leiðbeina móður í upphafi með brjóstagjöf
Heimildir
Smart medicine for a healthier child 2 útg (bls.). ISBN 1-58333-139-5
Náttúrulæknir heimilanna (bls.138). ISBN 9979-57-080-6