Önnur nöfn
Íslenska: Eyrnasýking
Enska: Otitis media, glue ear, ear infection
Eyrnabólga er algengt vandamál hjá ungabörnum og börnum frá 6 mánaða til 3 ára.
Miðeyrað er tengt við kokið í gegnum kokhlustina og hefur hún þann tilgang að hreinsa vökvauppsöfnun frá miðeyra ofan í kok. Kokhlustin í ungabörnum er láréttari en í eldri börnum og því er léttara fyrir vökva að festast í henni og í kjölfarið fyrir bakteríur að setjast að og mynda sýkingu sem veldur bólgu sem ýtir á hljóðhimnuna sem veldur síðan sársauka.
Einkenni eyrnabólgu er verkur við hlust, pirringur og grátur. Þar sem eyrnabólga kemur gjarnan í kjölfarið á kvefi eða flensu má búast við fjölda einkenna.
Brjóstamjólk inniheldur ónæmisþætti sem eru bakteríudrepandi og virkar vel að setja hana í eyrnahlustina til að ná niður eyrnabólgu.
Góðgerlablanda er nauðsynleg ef barnið hefur þurft að nota sýklalyf til að byggja upp þarmaflóruna, en sýklalyf valda skaða á þarmaflóru með því að eyða góðum bakteríum á sama tíma og þau eyða slæmu bakteríunum.
Útilokaðu mjólkurvörur þar sem þær slímmyndandi og geta þar af leiðandi aukið stíflur í kokhlustinni.
Fæðuóþol geta verið óbein ástæða eyrnabólga. Algengustu mataróþolsvaldarnir eru korn sem innihelda glúten, mjólkurvörur og soja. Dr. Joseph Mercola, vel þekktur læknir sem leggur áherslu á náttúrulegar lausnir, segir að í flestum tilfellum nái hann árangri með eyrnabólgur með því að útiloka kornvörur og einföld kolvetni úr fæðu barnsins.
Hvítlaukur inniheldur efni sem eru bakteríudrepandi. Saxaðu eitt hvítlauksrif í smátt og settu út í 1-2 matskeiðar af ólívuolíu og látið standa í hálftíma til að virku efnin blandist í olíuna. Setjið blönduna í eyrnahlustina til að vinna á eyrnabólgunni. Betra er að hita olíuna aðeins upp áður en hún er sett í eyrun.
Hægt er að fá tilbúna olíublöndu í Jurtaapótekinu til að setja í eyru barna.
Belladonna er fyrir barn sem er með hita, roða, útvíkkuð sjáöldur og heita og raka húð.
Ef eyrnabólgan kemur með tanntöku þá er Chamomilla viðeigandi.
Barn sem hefur hita samhliða eyrnabólgu ætti að prufa Ferrum phosphoricum
Fyrir barn sem grætur, hefur vægan hita og eyrnaverk sem kemur rólega er Pulsatilla viðeigandi. Pulsatilla barni finnst kuldi góður.
Til að lina verki frá miðeyrasýkingu er hægt að leggja heitan bakstur af lavender og chamomile ilmolíum á eyrað. Setja skal 4-5 dropa af hvorri olíu í skál með heitu vatni. Bleytið hreinan þvottaklút úr blöndunni (reynið að veiða upp olíudropana sem fljóta á yfirborðinu) og leggið við eyrað.
Læknir getur gefið sýklalyf fyrir eyrnabólgum. Fjöldi rannsókna hafa sýnt að börn sem fá ekki sýklalyf jafna sig jafnvel og þau sem fá sýklalyf. Rannsóknir hafa einnig sýnt að börn sem fá sýklalyf er hættara við að fá endurteknar sýkingar. Ef læknirinn þinn mælir með sýklalyfum þá er eðlilegt að spyrja hvað réttlætir það í ljósi fjölda rannsókna sem gerir lítið úr gagnsemi þeirra.
Við þrálátum eyrnabólgum getur læknir mælt með að barn fái rör í eyrun sem er smávægileg aðgerð.
Smart medicine for a healthier child 2 útg (bls.257). ISBN 1-58333-139-5
Encyclopedia of nutritional supplements (bls.445). ISBN 978-0-7615-0410-8
Lækningabók heimilanna (bls.74). ISBN 9979-52-222-4