Lausn nútíma mannsins til að bæta næringu í mataræði sitt eða næra sig þegar tími er af skornum skammti er að nota fæðubótaefni. Eins og nafnið gefur til kynna er þeim ætlað að vera viðbót eða bæta fæðu okkar. Gæði fæðubótaefna nær frá því að vera kemískur kokteill sem hefur neikvæð áhrif á heilsu til að vera lifandi, næringarrík fæða sem styður og bætir heilsu okkar. Skipta má fæðubótaefnum í tvo flokka, þeim sem gefa okkur næringu eins og prótein- og græn næringarduft og svo þeim sem er ætlað að auka eða bæta heilbrigði okkar eins og t.d. læknisjurtir.