Stuðningsmenn genabreytta matvæla segja þau örugg fyrir almenning og með genabreytingu aukist uppskera og eiturefnanotkun minnki. Raunin hefur verið sú að með tilkomu genabreyttra matvæla hefur orðið uppskerubrestur, eiturefnanotkun hefur aukist, afturkalla hefur þarft genabreytt matvæli vegna heilsufarslegra ástæðna og lengi má telja. Andstæðingar genabreytinga eru sammála því að þessi tækni sé ein mesta ógnun við lífríki okkar því að þegar við sleppum breyttum genum í lífríkið okkar eru þær gjörðir óafturkræfar.