• Forsíða
    • Góð ráð
    • Uppskriftir
    • Meðhöndlarar
    • Einkaþjálfarar
    • Æfingakerfi
    • Æfingasafn
    • Æfingastöðvar
  • Heilsa
  • Næring
  • Meðhöndlun
  • Þjálfun

  • Hægðatregða

    Önnur nöfn

    Enska: Constipation

    Almennt

    Hægðatregða er þegar fólk hefur of sjaldan hægðir og þær eru of harðar þannig að erfitt er að koma þeim frá sér. Ekki er til einhver ákveðin tala yfir hvað telst eðlilegur fjöldi hægða. Hægðartregða telst vera þegar fjöldi hægða fækkar frá því sem telst eðlilegt fyrir viðkomandi.

    Það telst eðlilegt að börn á brjósti hafi færri hægðir en börn á þurrmjólk þar sem brjóstamjólk nýtist svo vel að það er minna um úrgang sem þarf að losa við.

    Hér til hliðar má sjá myndir af hægðartregðu samkvæmt Bristol Stool Scale þar sem gerðir 1-2 teljast til hægðartregðu og gerðir 3-4 eru eðlilegar hægðir.

    Náttúrulækningar / húsráð

    Fæðubótaefni fyrir hægðatregðu má skipta í 3 flokka. Trefjar til að binda vökva í hægðir, örvandi efni eins og laxerolía sem pirra þarmavegginn og hvetur meltingahreyfingar og síðast smurning (t.d. clycerol og mineral olía) sem þekur hægðirnar þannig þær renni léttar út. Örvandi efni og smurning eru ekki æskileg nema í undantekningar tilvikum og þá ekki til langtíma.

    Hægt er að taka inn fæðubótaefni sem inniheldur mikið af trefjum, t.d. Husk.

    Góðgerlablanda býr til jákvæða þarmaflóru sem getur virkað vel gegn hægðatregðu.

    Ef það er sérstaklega vond lykt af hægðunum getur virkað vel að taka inn chlorophyll fæðubótaefni sem eru rík af magnesíum (sem er hægðalosandi) og hafa bakteríudrepandi áhrif.

    Ekki skal halda aftur af sér þegar þörf er að fara á klósettið að hægja á sér. Gott ráð til að koma reglu á hægðir er að setjast á klósettið alltaf á sama tíma, jafnvel þótt að það sé ekki þörf á því, sérstaklega eftir morgunmat eða æfingu. Það býr til reglu á meltingakerfinu að losa sig á ákveðnum tíma.

    Miklar kyrrsetur geta valdið hægðartregðu. Að stunda æfingar er örvandi fyrir meltingu.

    Næringaleiðbeiningar

    Ein algengasta ástæða hægðatregðu er skortur á vökva og trefjum í mataræði. Tryggðu að þú sért að drekka nægjanlega mikinn vökva og að mataræði þitt innihaldi nægjanlega mikið af trefjum. Trefjar hafa það hlutverk að binda vökva í hægðum svo að þær verði ekki þurrar og harðar. Ávöxtir, grænmeti, kornmeti, hnetur og baunir innihalda mikið af trefjum.

    Algengt er að nota sveskjur og sveskjusafa til að koma hreyfingu á hægðir.

    Grasalækningar

    Te úr fíflablöðum getur virkað sem vægt hægðarlyf. Setja skal1-2 matskeiðar af þurrkuðum blöðum út í bolla af heitu vatni.

    Aðrar jurtir sem notaðar eru fyrir hægðatregðu er kamilla, fennikka og humall.

    Hómópatía

    Alumina er fyrir litlar, harðar, kúlulaga hægðir, sem eru jafnvel þaktar slími.

    Calcarea carbonica er gjarnan notað fyrir hægðatregðu hjá litlum börnum með meltingarvandamál.

    Lycopodium er fyrir harðar, þurrar hægðir með verkjum rétt fyrir hægðir.  Þessi remedía er einnig viðeigandi fyrir þá sem eru með mjög illa lyktandi viðrekstur.

    Aðrar remedíur sem notaðar eru fyrir hægðatregðu er Bryonia, Plumbum metallicum.

    Ilmolíur

    Nuddið kviðinn réttsælis með eftirfarandi ilmolíublöndu, 3 dropar af kjarrmintu (marjoram)- og rósmarínolía (rosemary) og 2 dropar af kamilluolíu (chamomile) út í 30 ml. af möndluolíu

    Hefðbundnar lækningar

    Læknir getur ávísað á hægðarlosandi lyf sem eru örvandi fyrir meltingakerfið. Varast skal að nota þau of mikið þar sem þau geta latt ristilinn með tímanum og gert vandamálið verra.


    Heimildir

    Smart medicine for a healthier child 2 útg (bls.219). ISBN 1-58333-139-5

    Encyclopedia of nutritional supplements (bls.440). ISBN 978-0-7615-0410-8

    Lækningabók heimilanna (bls.108). ISBN 9979-52-222-4

    Náttúrulæknir heimilanna (bls.126). ISBN 9979-57-080-6

    Náttúrulegar og hefðbundnar lækningar (bls.34). ISBN 9979-2-1560-7

    Wikipedia. Leitarorð "Bristol Stool Scale". 14. júní 2010

    • Bæta við nýrri athugasemd

    Athugasemdir lesenda (1)

    Óskráður notandi's picture
    09 May 2012

    Ray Peat - Water: Swelling, Tension, Pain, Fatigue, Aging

    Salt er yndislegt til að koma kerfinu í gang.
    http://raypeat.com/articles/articles/water.shtml

    • Svara



Vinsælustu síðurnar

  • Forsíða
  • Finna meðhöndlara
  • Finna einkaþjálfara
  • Finna uppskrift
  • Leitarsíða
  • Tenglar

Heilsusíðan.is

  • Um Heilsusíðuna
  • Hafa samband
  • Auglýsa á Heilsusíðunni
  • Skrá sig á Heilsusíðuna
  • Starfsmenn
  • Ég vil skrifa fyrir Heilsusíðuna

Lagalegur fyrirvari

Allt efni á heilsusidan.is fellur undir höfundaréttarlög og er óheimilt að dreifa því nema með eftirfarandi skilyrðum sem er hægt að nálgast með því að smella hér.

Heilsusidan.is tekur enga ábyrgð sem hlýst af notkun af því efni eða ráðum sem birtast á heilsusidan.is. Fólk ber sjálft ábyrgð á sínum eigin gjörðum.

Heilsusidan.is tekur ekki ábyrgð á innsendu efni eða efni sem við bendum á. Aðsent efni eða tengdar vefsíður endurspegla ekki endilega skoðanir eigenda eða starfsmanna heilsusidan.is

Tengjast Heilsusíðunni

  • Facebook Gerast aðdáandi
  • Syndicate content fá RSS feed

Copyright © Heilsusidan.is