Eins og flest skyni vædd dýr hefur maðurinn notað jurtir og ýmsar náttúrulegar lausnir til að lækna sig í milljónir ára. Nú eru breyttir tímar. Í dag, hér á Íslandi, hefur almenningur takmarkað aðgengi að jurtum og fæðubótaefnum til að sjá um sig sjálft á sviði forvarna og lækninga. Jafnvel grasalæknar eftir margra ára nám er meinaður aðgangur að jurtum sem er þeim nauðsynlegur til að hjálpa fólki. Á sama tíma eru lausasölulyf leyfð sem valda þúsundum dauðsfalla á ári. Heilsufrelsi gengur út á að fá aðgang að jurtum og fæðubótaefnum til að geta valið meðhöndlun byggða á eigin hugmyndafræði.