Fyrir um það bil 100 árum byrjaði maðurinn að nota kemísk efni í ýmsar neysluvörur. Í rauninni veit engin nákvæmlega hversu mörg kemísk efni eru í notkun í heiminum, hvort sem á að nota þau í matvælaiðnaði eða öðrum iðnaði. Líklega tala er einhver staðar í kringum 100 þúsund. Við vitum þó aðeins lítið brot af þeim hefur verið rannsakað vegna áhrifa á heilsu manna og enn færri hafa verið rannsökuð vegna samvirkniáhrifa þeirra. Eitt vitum við, að mörg þeirra eru eitruð fyrir okkur og valda ýmsum sjúkdómum og líkamlegum vandamálum.