Önnur nöfn
Enska: Morning sickness
Morgunógleði er nokkuð algeng á fyrstu 3 mánuðum meðgöngu. Misjafnt er hversu slæm hún er og hversu lengi hún varir.
Ekki er vitað afhverju morgunógleði kemur en ein kenning er að hún stafi af hormónaóreglu.
Einkenni morgunógleði er ógleði, uppköst, slappleiki og lystarleysi
Drekktu reglulega vatn til að viðhalda góðu vökvajafnvægi.
Algengt er að konur sem þjást af morgunógleði hafi litla matarlyst, gott ráð er að borða lítið í einu af næringaríkum mat oft yfir daginn, t.d. kraftmikla kjöt-, grænmetis- eða kjúklingasúpu.
Piparmyntu- eða engiferste geta dregið úr morgunógleði. Einfalt er að búa til engiferste með því að rífa smá engifer út í bolla og hella sjóðheitu vatni yfir og bíða í 5-10 mínútur.
Pulsatilla – þunga- og fylldartilfinning, versnar við feita og saðsama fæðu, þarf ferskt loft, engin þorsti, verri á kvöldin.
Ipecacuanha – Þrálát ógleði sem verður ekki betri við uppköst.
Phosphorus – Tómatilfinning, löngun í kalda drykki en þeir valda fljótlega uppköstum.
Sepia – Verri við að hugsa um mat og finna lykt af mat, tómatilfinning, batnar við að borða, þreyta, grátgirni og taugaspenna.
Nux vomica – kúgast mikið, sérstaklega á morgnana, er vanstillt og taugaspennt.
Settu chamomille eða roseoil í klút og andaðu að þér.
Haltu ákveðið í 2 mínútur á hjartarstöðvar 6 punktinn sem er staðsettur 3 fingurbreiddir frá úlnlið (lófameginn) í beinni línu frá löngutöng til að létta á ógleði.
Lækningabók heimilanna (bls.120). ISBN 9979-52-222-4
Náttúrulæknir heimilanna (bls.138). ISBN 9979-57-080-6
Náttúrulegar og hefðbundnar lækningar (bls.80). ISBN 9979-2-1560-7