Botn 200 g spelti
100 g smjör
½ dl vatn
½ dl kókosmjöl
Fylling
250 g döðlur
Appelsínusafi
Kókosmjöl
Heslihnetur
Möndlur
Spelti sett í skál. Smjör skorið í bita og sett útí, blandað saman með fingrunum. Kókosmjöli og heslihnetum bætt út í, blandað með fingrunum. Vatni bætt í og enn blandað með fingrunum. Athugið að deigið má alls ekki hnoða heldur einungir þétta lítillega saman með lófunum. Deigið sett á borð og flatt út með kökukefli, því næst sett í bökuform og pikkað í botninn á nokkrum stöðum með gaffli. Bakað við 200 C í um 15 mín. Botninn er tekinn úr forminu fyllingin sett í og kreytt með fallegum ávöxtum. Gott er að hafa þeyttan rjóma eða sýrðan rjóma með. Fylling Döðlur settar í pott og appelsínusafa hellt yfir þannig að rétt flæði yfir döðlurnar. Soðið og hrært í á meðan, þangað til úr verður þykkur, kekkjalaus massi (einnig hægt að mauka með töfrasprota). Kókosmjöli, hnetum og möndlum bætt í eftir smekk.