Search form

  • Forsíða
    • Góð ráð
    • Uppskriftir
    • Meðhöndlarar
    • Einkaþjálfarar
    • Æfingakerfi
    • Æfingasafn
    • Æfingastöðvar
  • Heilsa
  • Næring
  • Meðhöndlun
  • Þjálfun
  • 7 einkenni sem ekki ætti að hunsa

    Höfundur: Halli Magg - 06 April 2012

    Grein þýdd frá www.mayoclinic.com

    Öll vitum við að verkur fyrir brjósti, skyndilegur missir af sjón eða máli eða mikil magaverkur þarfnast bráðrar athygli læknis, en hvað með önnur vægari einkenni? Það getur verið erfitt að vita hvaða einkenni borgar sig að láta athuga hjá lækni. Hér eru 7 einkenni sem betra er að láta athuga.

    Númer 1: Óútskýrt þyngdartap

    Það hljómar kannski eins og draumur að missa þyngd án þess að reyna, en í raunveruleikanum þá getur verið um alvarlegt sjúkdómseinkenni að ræða. Ef þú hefur misst meira en 10% af þyngd seinustu 6 mánuði án þess hafa breytt lífsstíl á nokkurn hátt (auka hreyfingu eða breyta mataræði) þá er betra að láta læknir athuga þig.

    Óúskýrt þyngdartap gæti orsakast af ýmsum ástæðum, eins og ofvirkum skjaldkirtli, sykursýki, þunglyndi, lifrarsjúkdóm, krabbamein eða meltingarsjúkdóm þar sem líkaminn nær ekki að taka upp næringu.

    Númer 2: Þrálátur hiti eða mjög hár hiti

    Það er óþarfi að hafa áhyggjur af öllum sótthita. Hiti spilar lykilhlutverk í að berjast á móti sýkingum. En ef þú hefur verið með hita í meira en 3 daga þá er betra að tala við lækni. Þrálátur hiti getur verið einkenni leyndrar sýkingar, sem gæti verið allt frá þvagfærasýkingu til berkla. Sum krabbameinstilfelli, eins og eitlakrabbamein, valda þrálátum hita. Einnig geta sum lyf valdið þessu vandamáli.

    Ef þú hefur háan hita, 39,4°C eða hærri, þá ættir þú að tala við læknirinn þinn.

    [Ég mæli eindregið með að lesa greinina “Mikilvægi sótthita” hér á Heilsusíðunni, hún er algjör skyldulesning um sótthita, sérstaklega fyrir foreldra.]

    http://www.heilsusidan.is/node/1691

    Númer 3: Stuttur andadráttur (mæði)

    Stuttur andadráttur sem virkar alvarlegri en það sem stíflað nef eða æfing myndi valda getur verið vísir að vandamáli. Ef þú átt erfitt með að ná andardrættinum þá ættir þú falast samstundis eftir hjálp. Einnig ættir þú að sækjast eftir hjálp ef andardráttur er erfiður þegar þú liggur útaf.

    Ástæður fyrir mæði geta verið meðal annars langvinn lungnateppa, þrálátt bronkítis, astmi, lungnabólga, blóðtappi í lungum, sem og önnur hjarta- eða lungnavandamál. Stuttur andardráttur getur einnig verið einkenni kvíðakasts sem getur valdið hröðum hjartslætti, svitakófi, stuttum andardrætti og öðrum líkamlegum einkennum.

    Númer 4: Óúskýrðar breytingar á hægðum

    Hvað telst til eðlilegra hægða er misjafnt á milli manna. Hafðu samband við læknir þinn ef hægðir þínar breytast frá það sem telst eðlilegt fyrir þig, eins og:

    ·      Blóð- eða svartlitaðar hægðir

    ·      Þrálátur niðurgangur eða hægðartregða

    ·      Óúskýrðar þarfir að hafa hægðir

    Breytingar á hægðum geta orsakast af bakteríusýkingu, eins og campylobacter eða salmónellu, vírus eða snýkjudýri. Aðrar ástæður geta verið iðrabólga (IBS) eða ristilkrabbamein.

    Númer 5: Ráðvilla eða persónuleikabreytingar

    Hafðu samband við lækni ef þú verður fyrir:

    ·      Skyndilegri ráðvilltri hugsun

    ·      Ráðvillu varðandi tíma og staðsetningu

    ·      Skyndilegu vandamáli með einbeitingu eða minni

    ·      Skyndilegri breytingu á persónuleika eða hegðun, t.d. að verða árásagjarn

    Breytingar á hegðun eða hugsun getur verið vísir að mörgum vandamálum, meðal annars sýkingu, blóðleysi, blóðsykurskorti, vatnsskorti eða andlegum vandamálum. Einnig geta lyf stundum valdið ráðvillu eða persónuleikabreytingum.

    Númer 6: Að verða óeðlilega saddur eftir að borða lítið

    Ef þú ert saddur fljótar en vant er, eða eftir minna magn af mati en vanalega þá er viðeigandi að ræða það við læknir þinn. Þetta ástand getur einnig fylgt með ógleði, uppköstum, þrota, hita og þyngdaraukningu eða þyngdartapi. Ef svo er vertu þá viss að segja lækni þínum einnig frá þessum einkennum.

    Mögulegar ástæður fyrir snemmbúinni ofmettun gæti t.d. verið bakflæði og iðrabólga. Í sumum tilfella getur þessi einkenni verið vísir að alvarlegri vandamálum, eins og krabbameini í brisi.

    Númer 7: Ljósblossar

    Bjartir punktar eða ljósblossar og aðrar sjónrænar truflanir geta verið undanfari mígrenis. Í öðrum tilfellum geta skyndilegar ljósblossar þýtt sjónhimnulos og hægt er mögulega að bjarga sjón ef hjálp er samstundis sótt.

     

    Heimild:

    7 signs and symptoms not to ignore

    Haraldur Magnússon - Osteópati B.Sc (hons) Halli Magg hefur lesið heilsutengd málefni síðan hann var unglingur og keypti sína fyrstu fræðibók 15 ára gamall. Hann hefur sótt óteljandi námskeið og fyrirlestra erlendis hjá fremstu fyrirlesurum á sviði næringar og þjálfunnar. Halli er með B.Sc (hons) gráðu í osteópatíu, einkaþjálfarapróf og síðast sótti hann hálfs árs nám hjá Dr. Daniel Kalish í Functional medicine, auk þess að taka sérhæfingu í taugaboðefnameðhöndlun. Aðaláhugamál Halla er að fræðast um ástæður hrörnunar nútímamannsins og hvaða lausnir eru í boði. Halli tekur fólk í stoðkerfameðferð og heldur fyrirlestra. Hægt er að hafa samband við hann í 841-7000.

    Athugasemd höfundar / þýðanda

    Því miður hefur stór hluti fólks ekki lengur trú á hefðbundnum lækningum og þeim lausnum sem þær bjóða upp á, sem eru gjarnan í formi lyfja eða uppskurða. Ekki er óalgengt að maður heyri setningar eins og “þessir læknar vita ekkert”, “læknar skrifa bara út pillur” og “læknar vita aldrei í grunninn hvað er að gerast”. Þetta er sorglegt. Ég er búinn að vera lengi talsmaður þess að heilbrigðiskerfi þar sem fólk getur fengið lausn vanda sinna og treyst á er ein af mikilvægari stoðum hvers samfélags og þessi þróun er skelfileg. Þessi þróun hefur leitt af sér að sumir einstaklingar verða algjörlega andsnúnir hefðbundnum lækningum. Það fer ekki milli mála að ég er gagnrýnin á marga þætti í hefðbundnum lækningum, en það er ekki óalgengt að ég eyði umtalsverðum tíma með skjólstæðingum mínum að benda þeim á hættuna að algjörlega loka á læknisþjónustu eða lyfjanotkun fyrir það vandamál sem viðkomandi er með.

    Sannleikurinn er sá, þrátt fyrir óhemju marga galla í hinu hefðbundna heilbrigðiskerfi, að læknar eru best til þess fallnir að greina möguleg varasöm einkenni. Stór hluti af námi þeirra fer einmitt að þekkja hvort einkenni séu hluti af sjúkdómaferli. Á þessu sviði eru óhefðbundnar lækningar, eins og t.d. nudd, hnykkingar, nálastungur, osteópatía eða hómópatía að minna gagni (þ.e. til að greina alvarlega sjúkdóma).

    Það er síðan þitt, ef þú færð einhverja greiningu á ástandi þínu, að ákvarða hvaða leiðir þú kýst að fara til að vinna bug á þeim.

    Í það heila. Við eigum að nota það besta úr báðum heimum, taka gagnrýndar og upplýstar ákvarðanir hvað er okkur fyrir bestu. Enda kostir og gallar við bæði kerfi.

    • Nid: 3239 06 April 2012 G´oð og þörf lesning.

      G´oð og þörf lesning.

      Add comment link: Bæta við nýrri athugasemd

Vinsælustu síðurnar

  • Forsíða
  • Finna meðhöndlara
  • Finna einkaþjálfara
  • Finna uppskrift
  • Leitarsíða
  • Tenglar

Heilsusíðan.is

  • Um Heilsusíðuna
  • Hafa samband
  • Auglýsa á Heilsusíðunni
  • Skrá sig á Heilsusíðuna
  • Starfsmenn
  • Ég vil skrifa fyrir Heilsusíðuna

Lagalegur fyrirvari

Allt efni á heilsusidan.is fellur undir höfundaréttarlög og er óheimilt að dreifa því nema með eftirfarandi skilyrðum sem er hægt að nálgast með því að smella hér.

Heilsusidan.is tekur enga ábyrgð sem hlýst af notkun af því efni eða ráðum sem birtast á heilsusidan.is. Fólk ber sjálft ábyrgð á sínum eigin gjörðum.

Heilsusidan.is tekur ekki ábyrgð á innsendu efni eða efni sem við bendum á. Aðsent efni eða tengdar vefsíður endurspegla ekki endilega skoðanir eigenda eða starfsmanna heilsusidan.is

Tengjast Heilsusíðunni

  • Facebook Gerast aðdáandi
  • Syndicate content fá RSS feed

Copyright © Heilsusidan.is