Þó svo að nútímamaðurinn lifir lengur í dag en áður og smitsjúkdómar hafa aldrei verið sjaldgæfari hafa hrörnunar- eða lífstílssjúkdómar aldrei verið algengari. Hjartasjúkdómar, krabbamein, þunglyndi, sykursýki, gigt og heilahrörnun eru dæmi um sjúkdóma sem stór hluti af samfélagi okkar þjáist af. Því miður er þróunin sú að hrörnunarsjúkdómar miðast ekki lengur við eldri fólk heldur er það sífellt yngra fólk sem þjáist af þeim.