Önnur nöfn
Enska: Teething
Almennt byrja börn að taka tennur á milli 6 og 8 mánaða aldurs og getur það valdið mismiklum sársauka hjá börnum. Sársaukin kemur þegar tönnin rífur tannholdið sem getur valdið bólgum í gómnum.
Eftir að fyrsta tönnin kemur í ljós má búast við nýrri tönn á mánaðarfresti. Mismunandi er hvenær og í hvaða röð tennurnar birtast en yfirleitt koma neðri miðjutennurnar fyrst og þarnæst efri miðjutennur. Tanntaka lýkur yfirleitt í kringum 30 mánaða aldur þegar allar 20 barnatennurnar eru komnar niður. Fullorðinstennur byrja að koma á milli 6 og 7 ára aldurs.
Einkenni tanntöku geta verið sárir og bólgnir gómar, vægur hiti, slef, börn bíta í harða hluti, pirringur, grátur, lystarleysi og erfiðleikar að sofa.
Kæling getur dregið úr bólgunni, hægt er að nota naghring sem settur er í kæli eða ísmola sem settur er í klút upp að gómnum. Varast skal að nota hrjúfa hluti sem geta sært góminn. Einnig getur barninu fundist gott að láta strjúka rólega yfir góminn.
Negulolía (clove oil) er náttúrlega verkjastillandi og getur virkað vel til að sæfa sára góma. Settu einn dropa af clove oil í 1-2 matskeiðar af olífuolíu og strjúktu blöndunni á góma barnsins. Negulolía er ekki bragðgóð og því er betra að láta eins lítið fara á tungu og mögulegt.
Hægt er búa til smyrsl úr lakkrísrótardufti sem er mjög róandi fyrir sára góma. Blandaðu smá dufti (ca. 1/8 úr tsk.) við nægjanlega mikið vatn til að búa til smyrsl sem er síðan varlega smurt á góma barnsins.
Chamomilla er algeng remedía fyrir vanlíðan vegna tanntöku
Belladona – ef gómurinn er mjög bólginn
Pulsatilla – til að minnka sársauka við tanntöku
Nuddaðu húðina milli þumals og vísfingurs barnsins með eigin þumal og vísifingri. Fyrst aðra hendina, svo hina.
Læknir getur ávísað verkjastillandi lyfjum til að draga úr sársauka. Mikilvægt er að fylgja ráðleggingum lækna þar sem börn þola mun minni skammta en fullorðnir.
Smart medicine for a healthier child 2 útg (bls.450). ISBN 1-58333-139-5
Lækningabók heimilanna (bls.82). ISBN 9979-52-222-4
Náttúrulegar og hefðbundnar lækningar (bls. 88). ISBN 9979-2-1560-7