• Forsíða
    • Góð ráð
    • Uppskriftir
    • Meðhöndlarar
    • Einkaþjálfarar
    • Æfingakerfi
    • Æfingasafn
    • Æfingastöðvar
  • Heilsa
  • Næring
  • Meðhöndlun
  • Þjálfun

  • Tognun

    Önnur nöfn

    Enska: Sprain (tognun á liðbandi), strain (tognun á vöðva)

    Almennt

    Tognun er þegar mjúkvefur (vöðvi, sin, liðband, liðpoki) ofteygist og slitnar að hluta (trosnar). Í kjölfarið koma einkenni tognunar sársauki, bólga, roði, mar og stirðleiki. Tognun á liðböndum og sinum tekur lengri tíma að gróa heldur en tognun á vöðvum. Það tekur fáa daga fyrir tognun að ná hámarki og síðan byrjar hún að gróa, búast má við að það taki vöðva u.þ.b. tvær vikur að gróa og liðbönd eitthvað lengur. Ef verkir eru miklir og virðast seint ætla að fara skal fara til læknis þar sem mögulega hefur orðið meiri skaði en tognun, t.d. beinbrot.

    Tognun getur komið eftir að vefur ofteygist vegna of mikils álags (t.d. tognun á brjóstvöðva í of þungri bekkpressu), uppsöfnun á sliti á mjúkvef við endurtekið álag (t.d. bólga í hnakkafestingum við að sitja endurtekið hokin) og síðast er tognun þegar mjúkvefur fær högg á sig (t.d. að fá spark í sköflung í fótbolta).

    Náttúrulækningar / húsráð

    RICE er klassískt ráð við tognun, RICE stendur fyrir Rest (hvíld), Ice (kæling), Compression (þrýstingur), Elevation (upphækkun). Hvíldin þýðir að þú eigir að hvíla þann líkamshluta sem tognaði og minnka þannig álag á hann. Settu kælingu strax á líkamshlutann sem tognaði og síðan er hægt að kæla hann reglulega til að flýta fyrir bata. Hægt er að setja þrýsting á líkamshlutann með því að vefja hann, það heldur við líkamshlutann og minnkar álagið á honum og einnig hjálpar að þrýsta bólgunni út. Fyrst um sinn meðan mesta bólgan er til staðar er gagnlegt að hækka viðkomandi líkamshluta upp til að minnka bólgumyndun og flýta fyrir að bólgan “leki út”.

    Nudd flýtir fyrir bata á tognuðum vefjum og getur einnig komið veg fyrir samgróninga í kjölfar tognunar. Nudd er sérstaklega viðeigandi ef tognun er sein að batna.

    Hægt er að bleyta klút upp úr eplaediki og leggja að bólgunni til að draga vökva úr henni.

    Grasalækningar

    Hægt er að kaupa arnikukrem til að smyrja á bólgur og flýtir það fyrir að draga úr bólgu.

    Valurt er bólgueyðandi og hægt er að gera bakstur með því að bleyta klút upp úr valurtartei sem er síðan lagt á bólguna.

    Hómópatía

    Arnica er aðalremedían þegar slys ber að höndum. Taktu Arnicu á 30-60 mínúta fresti í 5-10 skipti eftir slys og fylgdu því eftir með Rhus tox 3-4 sinnum á dag í nokkra daga eða þangað til verkur er farinn. Ef liður er mjög bólgin og marinn er Ruta viðeigandi eftir að búið er að taka inn Arnicu.

    Ilmolíur

    Ilmolíur sem eru bólgueyðandi eru eftirfarandi: oregano (kjarrminta), marjoram og ísópsolía (ekki fyrir ófrískar konur). Blandið nokkrum dropum af einhverjum af þessum olíum í smá möndluolíu og nuddið rólega yfir bólguna.

    Hefðbundnar lækningar

    Læknir getur ávísað verkjastillandi, vöðvaslakandi eða bólgueyðandi lyfjum

     

    Heimildir

    Lækningabók heimilanna (bls.128). ISBN 9979-52-222-4

    Náttúrulegar og hefðbundnar lækningar (bls.42). ISBN 9979-2-1560-7

    • Bæta við nýrri athugasemd



Vinsælustu síðurnar

  • Forsíða
  • Finna meðhöndlara
  • Finna einkaþjálfara
  • Finna uppskrift
  • Leitarsíða
  • Tenglar

Heilsusíðan.is

  • Um Heilsusíðuna
  • Hafa samband
  • Auglýsa á Heilsusíðunni
  • Skrá sig á Heilsusíðuna
  • Starfsmenn
  • Ég vil skrifa fyrir Heilsusíðuna

Lagalegur fyrirvari

Allt efni á heilsusidan.is fellur undir höfundaréttarlög og er óheimilt að dreifa því nema með eftirfarandi skilyrðum sem er hægt að nálgast með því að smella hér.

Heilsusidan.is tekur enga ábyrgð sem hlýst af notkun af því efni eða ráðum sem birtast á heilsusidan.is. Fólk ber sjálft ábyrgð á sínum eigin gjörðum.

Heilsusidan.is tekur ekki ábyrgð á innsendu efni eða efni sem við bendum á. Aðsent efni eða tengdar vefsíður endurspegla ekki endilega skoðanir eigenda eða starfsmanna heilsusidan.is

Tengjast Heilsusíðunni

  • Facebook Gerast aðdáandi
  • Syndicate content fá RSS feed

Copyright © Heilsusidan.is