• Forsíða
    • Góð ráð
    • Uppskriftir
    • Meðhöndlarar
    • Einkaþjálfarar
    • Æfingakerfi
    • Æfingasafn
    • Æfingastöðvar
  • Heilsa
  • Næring
  • Meðhöndlun
  • Þjálfun

  • Ungbarnakveisa

    Önnur nöfn

    Íslenska: Magakrampi, magakveisa

    Enska: Colic

    Almennt

    Nokkuð algengt er að ungabörn fái magakveisu á fyrstu 3 mánuðum ævi sinnar og er ástæða hennar óþekkt en hún er talin stafa af uppsöfnun á lofti í meltingafærunum eða af magakrömpum. Þetta ástand er ekki hættulegt og skaðar ekki barnið þó að það sé erfitt bæði fyrir barn og foreldra meðan á því stendur.

    Algengara er að börn sem fá pela fái magakveisu heldur en börn sem fá brjóstamjólk.

    Einkenni magakveisu geta verið eftirfarandi, barn grætur mikið, magi er útþaninn og barn er samankreppt.

    Náttúrulækningar

    Hægt er strjúka kvið barnsins réttsælis til að losa um loft. Annað gott ráð til að losa um loft er að beygja fætur taktfast að kviði, annað hvort báða fætur í einu eða á víxl (hjólahreyfing).

    Leggðu barnið yfir hné þér eða haltu því upp að þér með hitapoka milli þín og kvið barnsins. Þetta getur hjálpað til að stilla magakrampa og róa barnið þitt.

    Fyrir sum börn virkar að halda á þeim og rugga eða hossast með þau.

    Hægt er að gefa barni sérstaka ungbarna útgáfu af góðgerlum sem heitir Bifiobacterium infantis og fæst í heilsuhúsum. Þessir góðgerlar byggja upp eðlilega þarmaflóru hjá ungabarninu og þetta ráð á sérstaklega við hjá ungabörnum sem fá þurrmjólk eða hafa fengið sýklalyf óháð því hvort þau eru með magakveisu eða ei.

    Næringaleiðbeiningar

    Varast skal að barn gleypi loft þegar það er á brjósti eða með pela. Stoppa skal reglulega matargjöf til að klappa barni og losa um loft, og einnig skal taka góðan tíma eftir að mjólkurgjöf lýkur til að ná lofti upp úr barninu. Sumir segja einmitt þveröfugt, þ.e. að það eigi ekki að rjúfa mjólkurgjöf þar sem það geti aukið að barn gleypi loft. Finndu út hvor aðferðin virkar betur fyrir þig. Yfirleitt er betra að gefa barninu að drekka í uppréttri stellingu þar sem barnið gleypir minna loft í þeirri stellingu.

    Það er meiri líkur á að barn gleypi loft ef mjólkurflæði er of mikið, í þeim tilvikum skal halda við geirvörtu til að minnka flæði eða nota pela með totu með minni gati.

    Mataræði móður getur verið að fara illa í ungabarnið í gegnum móðurmjólkina. Algengustu fæðutegundirnar sem fara illa í börn eru sérstaklega mjólkurvörur, einnig súkkulaði, kaffi, melónur, agúrka, paprika, sítrus ávextir/djús og mikið kryddaður matur. Sniðugt getur verið að halda dagbók yfir mataræði móðurinnar og magakveisu barnsins og þannig sjá samhengið á neyslu móður og magakveisu barns ef það er eitthvað.

    Hjá þeim börnum sem eru á þurrmjólk getur verið gott að skipta um þurrmjólk þar sem hún gæti verið að fara illa í barnið.

    Grasalækningar

    Kamillu-, piparmintu- eða fenníkute er notað til að draga úr vindgangi. Setja skal 1 tsk. af laufi í ein bolla af sjóðheitu vatni í 10 mínútur. Gefa skal barninu 1 tsk. af tei á 30-60 mínúta fresti. Það má einnig blanda saman þessum jurtum í te. Í ísraelskri tilraun var blandað saman kamillu, lakrís, fenníku og mintu og gefið börnum ca. hálfan bolla á dag og niðurstaðan var að meira en helmingur barna varð betri.

    Móðir sem er með barn á brjósti getur einnig fengið sér te til að hjálpa barni sínu. Gott er að fá sér bolla af kamillu-, fenníku- eða engiferstei tvisvar til þrisvar á dag.

    Hómópatía

    Colocynthis og Magnesia phosphorica eru algengustu remedíurnar fyrir magakveisu og þær virka sérstaklega vel ef notaðar eru saman.

    Aðrar remedíur fyrir ungbarnakveisur eru Carbo vegetabilis, Chamomilla og Ipecacuanha.

    Ilmolíur

    Strjúktu kvið barnsins réttsælis með fenníkuolíu (fennil) (2 dropar út í hálfa teskeið af hlutlausri olíu, t.d. möndlu- eða hveitikímsolíu)

    Punktaþrýstingur

    Þrýsta skal þéttingsfast á húð milli þumals- og vísifingurs á báðum höndum í 1 mínútu.

    Hefðbundnar lækningar

    Hægt er að gefa miniform dropa sem hjálpar sumum börnum að losa sig við loft. Þeir fást í apótekum án lyfseðils. Einnig er möguleiki að læknir ávísi á róandi lyf handa barninu í alvarlegri tilfellum svo það nái að slaka á og hvílast.

    Heimildir

    Smart medicine for a healthier child 2nd ed. (bls.204) ISBN 1-58333-139-5

    Lækningabók heimilanna (bls. 121). ISBN 9979-52-222-4

    Náttúrulæknir heimilanna (bls. 159, 175). ISBN 9979-57-080-6

    Náttúrulegar og hefðbundnar lækningar (bls. 85). ISBN 9979-2-1560-7

    • Bæta við nýrri athugasemd



Vinsælustu síðurnar

  • Forsíða
  • Finna meðhöndlara
  • Finna einkaþjálfara
  • Finna uppskrift
  • Leitarsíða
  • Tenglar

Heilsusíðan.is

  • Um Heilsusíðuna
  • Hafa samband
  • Auglýsa á Heilsusíðunni
  • Skrá sig á Heilsusíðuna
  • Starfsmenn
  • Ég vil skrifa fyrir Heilsusíðuna

Lagalegur fyrirvari

Allt efni á heilsusidan.is fellur undir höfundaréttarlög og er óheimilt að dreifa því nema með eftirfarandi skilyrðum sem er hægt að nálgast með því að smella hér.

Heilsusidan.is tekur enga ábyrgð sem hlýst af notkun af því efni eða ráðum sem birtast á heilsusidan.is. Fólk ber sjálft ábyrgð á sínum eigin gjörðum.

Heilsusidan.is tekur ekki ábyrgð á innsendu efni eða efni sem við bendum á. Aðsent efni eða tengdar vefsíður endurspegla ekki endilega skoðanir eigenda eða starfsmanna heilsusidan.is

Tengjast Heilsusíðunni

  • Facebook Gerast aðdáandi
  • Syndicate content fá RSS feed

Copyright © Heilsusidan.is